grettla.com

Persónuverndarstefna

Gildir frá 29. október 2026

Í stuttu máli: Við geymum eins lítið og hægt er: notandanafnið þitt, hvaða aðgang þú ert með og skrá yfir innskráningar til að verjast misnotkun. Engar auglýsingar, engin rakning og ekkert selt áfram. Prófeinkunnirnar þínar og framvindan eru aðeins geymdar í vafranum þínum, ekki hjá okkur.

1. Hver ber ábyrgð

Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Dagur Ingi Ingason, sem rekur grettla.com. Netfang: dagur@grettla.com. Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða vilt nýta réttindi þín.

2. Hvaða upplýsingar eru geymdar og hvers vegna

UpplýsingarTil hversGrundvöllur
Notandanafn og lykilorð. Lykilorðið er geymt dulkóðað og enginn getur lesið það, ekki heldur við.Til að þú getir skráð þig inn.Samningur við þig
Hvaða aðgang eða bekkjarkóða þú ert með, skóli og hvenær aðgangurinn rennur út.Til að vita hvort aðgangurinn sé í gildi.Samningur við þig
Skrá yfir atburði: innskráningar, nýtt notandanafn, nýtt lykilorð og ný tæki, með tímasetningu.Til að aðstoða þig og verjast því að aðgangi sé deilt eða hann misnotaður.Lögmætir hagsmunir
Handahófskennt auðkenni tækis og stutt lýsing á því, t.d. „iPhone · Safari“. Ekkert sem segir hver þú ert.Til að aðgangurinn virki á einu tæki í einu.Lögmætir hagsmunir
IP-tala, í öryggisskrám innskráningarþjónustunnar og vefhýsingarinnar.Öryggi og varnir gegn árásum.Lögmætir hagsmunir
Netfangið þitt og það sem þú skrifar, ef þú sendir okkur póst, t.d. til að kaupa aðgang.Til að svara þér og afhenda aðganginn.Samningur við þig

Við biðjum ekki um nafn, kennitölu eða heimilisfang til að búa til aðgang. Við notum hvorki auglýsingar né greiningartól sem rekja notkun þína.

3. Það sem er bara geymt í vafranum þínum

Framvindan þín (svör í prófum, spjöld sem þú kannt, stjörnumerkt spjöld, síðasti kafli sem þú last) og stillingar eins og leturstærð og útlit eru geymdar í vafranum þínum (localStorage). Þær eru ekki sendar til okkar. Innskráningin er líka geymd þar svo þú þurfir ekki að skrá þig inn í hvert sinn. Þetta eru ekki vafrakökur til rakningar. Ef þú hreinsar vafrann hverfur þetta.

4. Hverjir vinna með gögnin fyrir okkur

Sumir þessara aðila eru bandarísk fyrirtæki. Gögn sem fara til þeirra njóta verndar samkvæmt stöðluðum samningsákvæðum eða sambærilegum úrræðum. Við seljum aldrei upplýsingar og afhendum þær engum öðrum nema lög krefjist þess.

5. Hve lengi gögnin eru geymd

6. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar og láta eyða þeim. Þú getur líka andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum. Sendu póst á dagur@grettla.com, og við svörum innan mánaðar. Notandanafni og lykilorði geturðu sjálf(ur) breytt í prófílnum á vefnum.

Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig farið er með upplýsingarnar geturðu kvartað til Persónuverndar.

7. Börn og ungmenni

Námsefnið er ætlað nemendum í grunn- og framhaldsskóla, og margir notendur eru undir 18 ára. Þess vegna geymum við eins lítið og hægt er og ekkert sem auðkennir þig beint. Foreldrar og forráðamenn geta haft samband fyrir hönd barns síns.

8. Breytingar

Ef stefnan breytist birtum við nýju útgáfuna hér með nýrri dagsetningu.