Í stuttu máli: Aðgangurinn er fyrir þig eina(n). Hann virkar á einu tæki í einu og má ekki deila, selja eða lána. Ef aðgangi er deilt má loka honum án endurgreiðslu. Þú getur hætt við kaup og fengið endurgreitt innan 14 daga, svo lengi sem þú hefur ekki skráð þig inn.
1. Um þjónustuna
grettla.com býður námsefni í íslenskum fornbókmenntum. Gylfaginning er seld sem aðgangur að vef með textanum, hljóðbók, myndböndum, skýringum og æfingum. Seljandi og þjónustuaðili er Dagur Ingi Ingason. Netfang: dagur@grettla.com.
2. Kaup og verð
Aðgangur fyrir einn nemanda kostar 490 kr. Verðið er með öllum gjöldum.
Til að kaupa sendirðu póst á dagur@grettla.com. Þú færð þá leiðbeiningar um greiðslu, og notandanafn og lykilorð þegar greiðsla hefur borist.
Skólar geta keypt aðgang fyrir heilan bekk. Þeir fá þá bekkjarkóða sem nemendur nota til að búa til eigin aðgang. Um verð og fjölda er samið hverju sinni.
Aðgangurinn gildir til þess dags sem kemur fram við afhendingu. Aðgangar sem nú eru seldir gilda til 31. júlí 2027.
3. Réttur til að hætta við kaup
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur þú 14 daga frá kaupum til að hætta við. Sendu þá póst á dagur@grettla.com, og þú færð greiðsluna endurgreidda innan 14 daga.
Aðgangurinn er stafrænt efni sem er afhent strax. Þegar þú skráir þig inn í fyrsta sinn hefst afhending, og með því samþykkir þú að hún hefjist strax og viðurkennir að þú missir þar með rétt til að hætta við kaupin (sbr. m-lið 18. gr. laganna). Ef eitthvað virkar ekki eins og því er lýst skaltu samt hafa samband. Við finnum lausn eða endurgreiðum.
4. Notkun aðgangsins
Hver aðgangur er fyrir einn notanda. Ekki má deila notandanafni og lykilorði með öðrum, selja aðganginn, lána hann eða láta hann ganga til annarra, t.d. næsta árgangs.
Aðgangurinn virkar á einu tæki í einu. Ef þú skráir þig inn á nýju tæki ertu skráð(ur) út af því fyrra.
Til að verjast misnotkun er skráð hvenær og á hvers konar tæki aðgangurinn er notaður. Sjá nánar í persónuverndarstefnunni.
Ef aðgangur er notaður andstætt þessum skilmálum, t.d. ef honum er deilt, má loka honum eða breyta lykilorði hans án endurgreiðslu. Við reynum alltaf að hafa samband fyrst.
Þú berð ábyrgð á að halda lykilorðinu leyndu. Ef þú gleymir því eða grunar að einhver annar hafi það, hafðu samband og þú færð nýtt.
5. Höfundarréttur
Hljóðbókin, myndböndin, skýringarnar, spurningarnar, myndirnar og hönnun vefsins eru vernduð höfundarrétti. Þér er heimilt að nota efnið til eigin náms og vitna í það í verkefnum, með tilvísun. Ekki má afrita efnið í heild eða að verulegu leyti, dreifa því, birta það annars staðar eða selja.
6. Þjónustan og ábyrgð
Við gerum okkar besta til að vefurinn sé aðgengilegur og réttur, en getum ekki tryggt að hann sé alltaf aðgengilegur eða villulaus. Hljóðbókin er lesin af talgervli og getur borið einstaka orð rangt fram.
Ef vefurinn liggur niðri í langan tíma eða efni sem lofað var vantar, getur þú fengið endurgreitt í hlutfalli við það.
Við getum bætt við, breytt eða lagað efni, t.d. leiðrétt villur, án fyrirvara.
7. Breytingar á skilmálum
Við getum breytt þessum skilmálum. Breytingar á keyptum aðgangi taka aðeins gildi ef þær eru þér í hag eða ef þú samþykkir þær. Dagsetning nýjustu útgáfu kemur fram efst.
8. Lög og ágreiningur
Um skilmálana gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann með samtali. Neytendur geta líka leitað til Neytendastofu eða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.